Ísland
04 FEB 2010 / Samfélag
Starfsfólk Actavis nýtti hádegið til að hreyfa sig á upphafsdegi Lífshlaupsins 2010. Margir fóru út að ganga, út að hlaupa eða í ræktina.
Góð þátttaka er í Lífshlaupinu, en um 40 lið frá Actavis voru skráð þegar Lífshlaupið hófst og var enn að fjölga.
Actavis sigraði í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins 2009, í flokki stærri fyrirtækja.
Hjá Actavis er lögð mikil áhersla á heilbrigði og vellíðan starfsfólks, og starfar sérstakt heilsuteymi hjá fyrirtækinu. Actavis fékk sérstaka heiðursviðurkenningu 2009 sem góð fyrirmynd í heilsueflingu á vinnustöðum og fyrirtækið var fulltrúi Íslands á ráðstefnu um heilsueflingu á vinnustöðum sem haldin var á Ítalíu.