Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Fréttatilkynningar

29 MAR 2010 / Samfélag

 

Actavis ONE í öðru sæti í liðakeppni mottumars

Mottumars - lið Actavis ONE

Sameiginlegt lið starfsmanna Actavis „Actavis ONE“ varð í öðru sæti í liðakeppni mottumars, fjáröflunar- og árverkniátaki Krabbameinsfélags Íslands. Lið Actavis safnaði rúmri milljón króna, en all söfnuðust yfir 26 milljónir í átakinu. Lið Arion banka náði forystunni í liðakeppninni með framlagi fyrirtækisins á síðustu mínútu átaksins. Actavis ONE var með yfir 300 áheit í keppninni og tók starfsfólk Actavis virkan þátt í átakinu.

Fram kemur á vef átaksins að árlega greinist á Íslandi yfir 700 karlar með krabbamein. Því sé mikilvægt að þekkja almenn einkenni. Átakinu var meðal annars ætlað að kynna einkenni algengustu krabbameina og auka umræðuna í þjóðfélaginu.

Kynningarefni á vefnum Karlmenn og krabbamein

Svæði liðs Actavis ONE á vef átaksins


  • til baka
  • prenta
  • senda