Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Fréttatilkynningar

25 MAÍ 2007 / Samfélag

 

Niðurstöður Forvarnardags kynntar á Bessastöðum

Forvarnardagur: Niðurstöður kynntar á BessastöðumForseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson efndi til fundar á Bessastöðum í morgun til að fylgja eftir Forvarnardeginum sem haldinn var síðastliðið haust til að styrkja nauðsynlega forvarnarumræðu í landinu. Á fundinum var einnig fjallað um samstarf Evrópuborga í forvarnarmálum.

Í ávarpi sínu ræddi forseti um mikilvægi forvarnarstarfsins og það samstarf Evrópuborga sem hann hefur átt frumkvæði að sem verndari verkefnisins Youth in Europe – A Drug Prevention Programme.

Youth in EuropeForstjóri Actavis Róbert Wessman lýsti sérstakri ánægju með þann árangur sem náðst hefur og tilkynnti að Actavis væri reiðubúið að styrkja nýjan Forvarnardag á komandi hausti. Actavis er bæði bakhjarl Forvarnardagsins á Íslandi og meginbakhjarl þeirra evrópsku rannsókna sem kynntar voru á fundinum. Reykjavíkurborg stýrir verkefninu og ávarpaði Jórunn Frímannsdóttir formaður Velferðarráðs borgarinnar fundinn.

Tveir fræðimenn frá Háskólanum í Reykjavík, dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir og Álfgeir Kristjánsson aðjúnkt kynntu fyrstu niðurstöður hinna evrópsku rannsókna í forvörnum og þær niðurstöður sem Forvarnardagurinn á Íslandi hefði skilað.

Inga Dóra SigfúsdóttirForvarnardagurinn
Eitt af markmiðunum með Forvarnardeginum á Íslandi var að virkja nemendur, skóla og samfélagið allt í baráttunni gegn fíkniefnum. Nemendur um allt land tóku þátt í deginum meðal annars með því að skrá hugmyndir sínar um hvernig stuðla megi að minnkandi fíkniefnaneyslu meðal unglinga og nú hefur verið unnið úr þeim hugmyndum til að fá sem skýrasta mynd af því hvað unglingarnir sjálfir telja mikilvægt að gert sé í þessum efnum.

Íslensk ungmenni segja að íþróttafélög og æskulýðshreyfingar eigi að leggja meiri áherslu á fjölbreytni í framboði og á bætta aðstöðu og að skólar og íþróttafélög þurfi að stilla betur saman strengi sína. Þá geti keppnisharka og kostnaður dregið úr áhuga eða hindrað þátttöku unglinga í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Ungmennin telja samverustundir með fjölskyldum sínum mikilvægar og hafa lagt fram margar tillögur um hvernig foreldrar og börn geti varið meiri tíma saman, svo sem með því að ferðast saman, borða saman og horfa saman á sjónvarp. Stuðningur frá foreldrum og nánasta umhverfi skiptir miklu máli að dómi unglinga, þegar þeir eru spurðir um forvarnir, og helstu fyrirmyndir barna eru innan fjölskyldunnar.

Forvarnardagur: Farið yfir niðurstöður á BessastöðumÍslenska fyrirmyndin
Ný rannsókn á fíkniefnaneyslu ungmenna í níu Evrópuborgum sýnir að neyslan er minni í Reykjavík en í samanburðarborgunum. Rannsóknin sýnir auk þess að fíkniefnaneysla barna og ungmenna er minnst í þeim borgum Evrópu þar sem gripið hefur verið til markvissra forvarnaraðgerða á vettvangi sveitarfélaga með náinni samvinnu foreldra, skóla og grasrótarsamtaka. Má telja ljóst að markverður árangur hefur náðst í Reykjavík á undanförnum tíu árum, enda sækja nú aðrar borgir í reynslu okkar og tala um íslensku fyrirmyndina. Samtök evrópskra borga gegn fíkniefnum (ECAD) standa nú að sérstöku verkefni í 15 borgum í Evrópu þar sem sambærilegum aðferðum er beitt og verður framkvæmdinni stýrt frá Reykjavík.

Actavis er aðalstyrktaraðili þessa verkefnis og forseti Íslands verndari þess.

Auk forseta Íslands, Reykjavíkur og Actavis, stóðu Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og Bandalag íslenskra skáta að Forvarnardeginum, og fulltrúar þeirra sátu einnig fundinn á Bessastöðum. Rannsóknirnar voru unnar á vegum Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands.

Skýrsla: Niðurstöður Forvarnardags 2006 (pdf)

Kynningarglærur: Niðurstöður Forvarnardags 2006 (pdf)

Kynningarglærur: Fyrstu niðurstöður úr rannsóknum Youth in Europe (pdf)

  • til baka
  • prenta
  • senda