Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Fréttatilkynningar

07 ÁGÚ 2009 / Aðrar

 

Rætt við Sigurð Óla í Economist

Sigurður Óli Ólafsson, forstjóri ActavisTímaritið Economist, eitt virtasta viðskiptatímarit heims, fjallar um samheitalyfjamarkaðinn í nýjustu útgáfu blaðsins. Sigurður Óli Ólafsson, forstjóri Actavis, var meðal viðmælenda blaðamanns við undirbúning greinarinnar.

"Hvað ef til væri ein blá tafla og önnur rauð" segir í inngangi greinarinnar þar sem blaðið vitnar í ‘valdamesta mann í heimi’, Barack Obama Bandaríkjaforseta. "Hvað ef bláa taflan væri helmingi ódýrari en sú rauða en virkaði samt alveg jafn vel? Því ekki að borga helmingi minna?"

Með þessu vísar Obama að sjálfsögðu til þess verðmunar sem er á frumlyfjum og samheitalyfjum, en lyfjayfirvöld leggja sífellt aukna áherslu á að auka notkun á samheitalyfjum - "bláu töflunum" í þessarri myndlíkingu. Þetta á við í flestum þeirra 40 landa þar sem Actavis starfar, en félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu á samheitalyfjum.

Greinin fjallar um þau skref sem frumlyfjafyrirtæki hafa tekið til að mæta breyttum aðstæðum, og lækkandi tekjum, en nokkur þeirra hafa fært sig út í samheitalyfjaframleiðslu við hlið frumlyfjanna. Ekki eru þó allir vissir um að svo ólíkur rekstur gangi undir sama hatti.

Sigurður Óli, sem vann hjá frumlyfjafyrirtækinu Pfizer áður en hann kom til Actavis, segist ekki sannfærður. Samheitalyfjafyrirtæki þurfi að vera snör í snúningum og óhrædd við að fara framhjá einkaleyfum frumlyfjafyrirtækjanna, jafnvel fara í mál til að fá þau felld niður svo hægt sé að koma ódýrara samheitalyfi fyrr á markað.

Sigurður Óli segist efins um að samsett fyrirtæki séu tilbúin til að ganga eins langt til þess og samheitalyfjafyrirtæki séu tilbúin að gera í dag. 

Greinin á vef Economist

  • til baka
  • prenta
  • senda