Fjögur ný samheitalyf frá Actavis komu á markað á Íslandi í ágúst og september. Um er að ræða Topiramat sem gefið er við flogaveiki og mígreni, Mycophenolatmofetil sem notað er við líffæraígræðslur, augnlyfið Latanoprost Actavis og Sildenafil Actavis sem er samheitalyf frumlyfsins Viagra®. Öll lyfin eru lyfseðilsskyld.
Actavis hefur nú markaðssett 12 ný samheitalyf á Íslandi á árinu. Hin eru m.a. geðlyfið Esopram, krabbameinslyfið Paclitaxel, blóðlyfið Clopidogrel og veirulyfið Valaciclovir.
Sildenafil Actavis er jafngilt frumlyfinu Viagra®. Það er notað til meðferðar við ristruflunum hjá karlmönnum. Sildenafil Actavis eru 50 mg og 100 mg bláar sporöskjulaga töflur í 4 og 12 stykkja pakkningum.
Mykofenolatmofetil Actavis er jafngilt frumlyfinu Cellcept®. Hver tafla inniheldur 500 mg af virka efninu mýcófenólat mofetíl sem er notað samhliða ciklósporíni og barksterum sem fyrirbyggjandi gegn bráðri höfnun á ígræðslu hjá sjúklingum sem fá ósamgena nýrna-, hjarta- eða lifrarígræðslu. Lyfið tilheyrir flokki sérhæfðra lyfja til ónæmisbælingar og er fyrsta samheitalyfið á Íslandi í þessum flokki.
Latanoprost Actavis augndropar eru jafngildir frumlyfinu Xalatan®. Latanoprost Actavis er ætlað til lækkunar á augnþrýstingi hjá sjúklingum með gleiðhornsgláku og hækkaðan augnþrýsting og er hið fyrsta frá Actavis í þessum flokki.
Topiramat Actavis er jafngilt frumlyfinu Topimax®. Topiramat Actavis töflur eru 25, 50 eða 100 mg í 60 stk pakkningum. Lyfið er notað við flogaveiki og sem fyrirbyggjandi meðferð við mígrenihöfuðverk hjá fullorðnum eftir ítarlegt mat á öðrum mögulegum meðferðarúrræðum. Topiramat Actavis er þróað og framleitt af Actavis í Hafnarfirði.