Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Fréttatilkynningar

29 SEP 2009 / Vörufréttir

 

Flogaveikilyf frá Actavis fyrst á markað í fjórum Evrópulöndum

Actavis var fyrst á markað með flogaveikilyfið Topiramate í fjórum Evrópulöndum þegar einkaleyfi frumlyfsins rann út þann 25. september. Actavis setti lyfið á markað í Bretlandi, Þýskalandi, Frakklandi og Sviss, en þrjú fyrstnefndu löndin eru stærstu lyfjamarkaðir í Vestur-Evrópu.

Topiramate (tópíramat) er notað við flogaveiki. Frumlyfið, sem heitir Topamax eða Epitomax eftir því hvaða land á í hlut, er frá frumlyfjafyrirtækinu Janssen-Cilaq.

Samheitalyfið var þróað hjá Actavis og framleitt í lyfjaverksmiðju Actavis í Hafnarfirði.

Frumlyfið seldist fyrir um 98 milljónir evra í löndunum fjórum, Bretlandi, Þýskalandi, Frakklandi og Sviss, á 12 mánaða tímabili til loka júní 2009, skv. tölum frá IMS Health.

Topiramate frá Actavis er þegar á markaði í löndum þar sem ekkert einkaleyfi var fyrir lyfinu og hefur meðal annars verið selt í Portúgal síðan 2007.

  • til baka
  • prenta
  • senda