Actavis hefur endurnýjað styrktarsamning fyrirtækisins við Körfuknattleiksdeilda Hauka, en Actavis hefur undanfarin sex ár verið aðalstyrktaraðili körfuknattleiksdeildarinnar.
Haukar náðu góðum árangri á síðasta ári og ákvað Actavis að styðja áfram það gróskumikla starfi sem unnið er innan Körfuknattleiksdeildar Hauka.
Á síðasta keppnistímabili varð meistaraflokkur kvenna bikarmeistari og meistaraflokkur karla vann sig upp í efstu deild. Þá unnu yngri flokkar Hauka í körfubolta 5 íslands- og bikarmeistaratitla á liðnu keppnistímabili þannig að ljóst er að framtíðin er björt hjá Haukum.

Guðbjörg Edda Eggertsdóttir aðstoðarforstjóri Actavis og Samúel Guðmundsson formaður Körfuknattleiksdeildar Hauka skrifuðu undir samninginn.
Við það tækifæri sagði Samúel samningurinn gríðarlega mikilvægan fyrir Hauka og stórt skref í þá átt sem stefnt sé í, að meistaraflokkur karla verði einnig í allra fremstu röð eins og meistaraflokkur kvenna hefur verið mörg undanfain ár. Guðbjörg Edda sagði Actavis vilja láta gott af sér leiða á sviðum sem snerta meðal annars heilbrigði og íþróttir, svo það væri sérstök ánægja að endurnýja samninginn við körfuknattleiksdeild Hauka.
Samhliða voru staðfestir leikmannasamningar við fjóra unga og efnilega leikmenn í meistaraflokki karla þá Örn Sigurðarson, Emil Barja, Hauk Óskarsson og Kristinn Marinósson. Þessir leikmenn urðu allir Íslandsmeistarar síðastliðið vor og binda stuðningsmenn Hauka miklar vonir við að þessir leikmenn muni lyfta karlaliði Hauka upp í allra fremstu röð á næstu árum.
Einnig voru staðfestir leikmannasamningar við fjóra unga og efnilega leikmenn í meistaraflokki kvenna þær Auði Ólafsdóttur, Dagbjörtu Samúelsdóttur, Ínu Salome Sturludóttur og Ingu Sif Sigfúsdóttur. Þær eru allar margfaldir Íslands- og bikarmeistarar og urðu þær á síðasta ári tvöfaldir Íslandsmeistarar í unglinga- og stúlknaflokki auk bikarmeistartitils í stúlknaflokki.
Þá var einnig Ívar Ásgrímsson boðinn velkominn til starfa hjá Haukum en hann hefur verið ráðinn sem yfirþjálfari yngri flokka í körfuknattleik. Ívar hefur mikla reynslu af þjálfun og mun hann auk þjálfunar á fjórum flokkum sjá um íþróttaakademíuna í Flensborgarskóla.