Róbert Wessman forstjóri Actavis, Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði og Björn Leifsson framkvæmdastjóri World Class vígðu hlaupabrettin um leið og stöðin var formlega opnuð.
World Class hefur opnað 700 fermetra líkamsræktarstöð á jarðhæðinni í Dalshrauni 1, í sama húsi og höfuðstöðvar Actavis Group eru staðsettar.
Í stöðinni er fullkominn tækjasalur, þjálfari í sal og boðið upp á einkaþjálfun. Stöðin er opin alla daga vikunnar nema sunnudaga.
Það var Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði sem opnaði stöðina formlega.
Róbert Wessman forstjóri Actavis sagði frá því við opnunina hvernig hugmyndin að World Class í Actavis húsinu varð til, í samtali hans við Björn Leifsson framkvæmdastjóra World Class. Róbert segist hafa mikla trú á að tilkoma stöðvarinnar í húsinu efli líkamsræktariðkun starfsfólksins. „Actavis hefur lengi hvatt starfsmenn til heilsueflingar. Ég er sannfærður um að það auki hag fyrirtækisins að hafa hraust fólk í vinnu, því það að vera í góðu líkamlegu formi eykur bæði afköst og getu til að standast álag.“