Actavis think smart medicine

Ísland


Amló

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Amlodipine 5 mg og 10 mg
Lyfjaflokkur:
Hjarta- og æðasjúkdómalyf
Undirlyfjaflokkur:
Kalsíumgangalokar
ATC flokkur:
C08CA01
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:
 5 mg  - 100 stk.

10 mg - 100 stk.

Ábendingar:
Amlódipín tilheyrir flokki lyfja sem kallast kalsíumblokkarar. Lyf í honum hindra flæði kalsíums inn í vöðvafrumur, en kalsíum er nauðsynlegt fyrir samdrátt vöðvafrumna. Vöðvafrumur í líkamanum innihalda mismikið af kalsíum og eru því ekki allar jafn mikið háðar flæði kalsíums inn í frumuna. Áhrif kalsíumblokkara beinast því að mestu við frumurnar með lítið kalsíum, eða vöðvafrumur í æðaveggjum og hjartavöðva. Kalsíumblokkarar eru síðan flokkaðir innbyrðis eftir því hvort áhrif þeirra beinast að æðum eða hjarta. Amlódipín hefur fyrst og fremst æðavíkkandi áhrif. Það víkkar bæði kransæðar og slagæðar, minnkar með því móti blóðþrýsting og eykur blóðflæði til hjartavöðva. Amlódipín er notað við háþrýstingi og stöðugri hjartaöng.
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Amló (PDF 77,92kb)

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Amló (PDF 53,56kb)