Actavis think smart medicine

Ísland


Amoxicillin Mylan

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Amoxicillin 500 mg og 750 mg
Lyfjaflokkur:
Sýkingalyf
Undirlyfjaflokkur:
Sýklalyf (antibacterials)
ATC flokkur:
J01CA04
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Hylki til inntöku, töflur til inntöku    
Pakkningastærðir:

500 mg hylki 20 stk og 30 stk.

750 mg töflur 20 stk. 

Ábendingar:

Amoxicillín er breiðvirkt pensilínsamband. Það hefur áhrif á margar tegundir baktería sem valda sýkingum, en ónæmi baktería fyrir lyfinu fer ört vaxandi. Amoxicillín er oftast notað við sýkingum í eyrum, öndunarvegum, þvagfærum og við lekanda. Það er líka notað ásamt öðrum lyfjum, sem minnka sýruframleiðslu í maga, til þess að uppræta sýkingar sem valda endurteknum maga- eða skeifugarnarsárum.

Eins og önnur breiðvirk sýklalyf getur amoxicillín raskað eðlilegri bakteríuflóru líkamans og því getur fylgt aukin hætta á sýkingum af völdum sveppa eða baktería sem eru ónæmar fyrir lyfinu.

Húðútbrot eru algeng af völdum lyfsins, sérstaklega ef sjúklingur er með vissar veirusýkingar. Þessi húðútbrot þýða þó ekki alltaf það að sjúklingur sé með pensilínofnæmi. En einkenni á borð við hita, bólgna tungu eða háls, og öndunarerfiðleika gefa venjulega til kynna að viðkomandi hafi ofnæmi fyrir öllum pensilínsamböndum.

 

  • til baka
  • prenta
  • senda