Meðferð við einkennum þurrks í hornhimnu og augnslímhúð (augnþurrki) vegna truflunar á táraseytingu og starfstruflana vegna staðbundinna eða altækra sjúkdóma eða vegna þess að augnlok lokast ekki eðlilega/nægilega.
Vökvun og endurvökvun á hörðum snertilinsum.
Verkunarháttur:
Hýprómellósi er að hluta til metýleraður og hýdroxýprópýleraður sellulósi.
Yfirborð hornhimnu í heilbrigðu auga helst rakt aðallega fyrir tilstilli músíns sem er framleitt í augnslímhúð. Músín aðsogast á yfirborð hornhimnunnar og myndar þar vatnssækið yfirborð.
Augnþurrkur og sérstaklega músínskortur eru ábendingar fyrir notkun gervitára. Bæði yfirborðsvirkni þeirra og aðsogsgeta er mikilvæg í þessu tilliti. Hýprómellósi hentar sérstaklega vel.
Hýprómellósi hefur eðlis-efnafræðilega virkni og dregur úr yfirborðsspennu og eykur seigju vatnslausnar. Hýprómellósi hefur góða viðloðun við hornhimnuna og augnslímhúð og veitir fullnægjandi raka. Þannig dregur úr ertingu þegar augum er blikkað vegna skorts á táravökva og komið er í veg fyrir önnur einkenni vegna þurrks í þekju.