Asýran
- Virk innihaldsefni og styrkleikar:
- Ranitidine 150 mg og 300 mg
- Lyfjaflokkur:
- Meltingarfæra- og efnaskiptalyf
- Undirlyfjaflokkur:
- Lyf gegn sýrutengdum sjúkdómum
- ATC flokkur:
- A02BA02

- Lyfjaform og notkun:
- Filmuhúðaðar töflur til inntöku
- Pakkningastærðir:
-
150 mg - 10, 30, og 60 stk. álþynnupakkningar
300 mg - 30 og 100 stk. álþynnupakkningar
150 mg. 10 og 30 stk fást án lyfseðils.
Ábendingar:
Asýran er lyf af flokki meltingarfæralyfja sem dregur úr sýrumyndun í maganum.
Asýran er notað gegn sárasjúkdómum í meltingarfærum s.s. maga- og skeifugarnarsári og fyrirbyggjandi gegn slíkum sárum. Asýran er notað við bólgum í vélinda, sem stafa af því að magasýra kemst úr maga upp í vélinda. Asýran er einnig notað við sjaldgæfum sjúkdómi sem nefnist Zollinger-Ellisons heilkenni, þar sem óhemju mikil framleiðsla á magasýrum á sér stað.
Verkunin kemur oftast í ljós eftir nokkra daga við reglulega notkun á lyfinu.