Actavis think smart medicine

Ísland


Atenólól Actavis

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Atenolol 25 mg.
Lyfjaflokkur:
Hjarta- og æðasjúkdómalyf
Undirlyfjaflokkur:
Beta-blokkar
ATC flokkur:
C07AB03
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:

25 mg - 30 og 100 stk.

Atenolol Mylan tímabundið í stað Atenólól Actavis.


Framleiðslu á Atenólól Actavis hefur verið hætt en nýtt Atenolol Actavis er væntanlegt í lok þessa árs.

Um er að ræða tvo styrkleika, 25 og 50 mg sem verða í 100 stk. þynnupakkningu. Um nýja samsetningu er að ræða en lyfið inniheldur sama virka innihaldsefni og heitir Atenolol Actavis í stað Atenólól Actavis.

Fyrsta lotan af lyfinu mun verða merkt sérstaklega þar sem fram kemur að um nýja samsetningu er að ræða en að lyfið innihaldi sama virka innihaldsefnið.
Þangað til hið nýja Atenolol Actavis verður fáanlegt er búið að tryggja nægar birgðir af Atenolol Mylan.

Athygli er þó vakin á því að 25 mg töflurnar frá Mylan eru því miður ekki með deiliskoru líkt og Atenólól Actavis, en hið nýja Atenolol Actavis verður einnig með deiliskoru.
Til skömmtunar í apótekum og stofnunum verður áfram hægt að fá Atenolol Mylan 25 og 50 mg í 250 stk. glösum.

Ábendingar:
Atenólól tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkarar. Lyf í honum hindra áhrif boðefnanna adrenalíns og noradrenalíns á ýmis líffæri eins og á hjarta og æðar. Beta-blokkarar skiptast í undirflokka eftir eiginleikum sínum, hvort þeir hafi sérhæfð áhrif á hjarta eða hvort þeir komist til miðtaugakerfis eða ekki. Atenólól hefur sérhæfð áhrif á hjartavöðva þar sem það skerðir samdráttarkraft hjartans og hjartsláttartíðni. Vegna sérhæfni sinnar hefur atenólól færri aukaverkanir en ósérhæfðir beta-blokkarar, t.d. hefur það lítil áhrif á lungu og astmasjúklingar þola það vel. Atenólól hefur aftur á móti ekki jafn breitt notkunarsvið og ósérhæfðu lyfin og það er því aðeins notað við háþrýstingi og hjartaöng.
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Atenólól Actavis (PDF 76,9kb)

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Atenólól Actavis (PDF 86,42kb)