Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Atenolol Mylan

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Atenolol 25 mg, 50 mg og 100 mg
Lyfjaflokkur:
Hjarta- og æðasjúkdómalyf
Undirlyfjaflokkur:
Beta-blokkar
ATC flokkur:
C07AB03
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:

25 mg - 28 stk, 98, stk. og 100 stk.

50 mg - 28 stk, 98 stk. og 100 stk.

100 mg - 28 stk. og 98 stk.

Ábendingar:
Atenólól tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkarar. Lyf í honum hindra áhrif boðefnanna adrenalíns og noradrenalíns á ýmis líffæri eins og á hjarta og æðar. Beta-blokkarar skiptast í undirflokka eftir eiginleikum sínum, hvort þeir hafi sérhæfð áhrif á hjarta eða hvort þeir komist til miðtaugakerfis eða ekki. Atenólól hefur sérhæfð áhrif á hjartavöðva þar sem það skerðir samdráttarkraft hjartans og hjartsláttartíðni. Vegna sérhæfni sinnar hefur atenólól færri aukaverkanir en ósérhæfðir beta-blokkarar, t.d. hefur það lítil áhrif á lungu og astmasjúklingar þola það vel. Atenólól hefur aftur á móti ekki jafn breitt notkunarsvið og ósérhæfðu lyfin og það er því aðeins notað við háþrýstingi og hjartaöng.
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (upplýsingar fyrir fagfólk)

Atenolol Mylan