Actavis think smart medicine

Ísland


Candizol

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Fluconazole 50 mg, 150 mg og 200 mg
Lyfjaflokkur:
Sýkingalyf
Undirlyfjaflokkur:
Sveppalyf (antimycotica)
ATC flokkur:
J02AC01
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Hylki til inntöku
Pakkningastærðir:

50 mg - 7 stk. og 30 stk.

150 mg - 1 stk. 2 stk. 4 stk. og 7 stk.

200 mg - 30 stk.

Ábendingar:
Flúkónazól er sveppahemjandi lyf. Það raskar starfsemi í frumum sveppa og hindrar vöxt þeirra. Flúkónazól hefur áhrif á margar sveppategundir og er oft notað við sveppasýkingum í slímhúð, leggöngum, þvagfærum og húð. Það er einnig notað til að fyrirbyggja sveppasýkingar hjá einstaklingum með bælt ónæmiskerfi. Aukaverkanir flúkónazóls eru flestar vægar og það þolist yfirleitt vel. Aukaverkanir þess eru tíðari eftir því hvað skammtarnir eru stórir eða tíminn langur sem það er tekið. Lyfið getur skert lifrarstarfsemi þeirra sem eru með einhverja lifrarsjúkdóma fyrir. Þessi áhrif ganga oftast til baka þegar meðferð hættir.
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Candizol (PDF 153,99kb)

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Candizol (PDF 100,64kb)