Actavis think smart medicine

Ísland


Candpress Comp

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Candesartan cilexetil og hýdróklórtíazíð 16 mg/12,5 mg
Lyfjaflokkur:
Hjarta- og æðasjúkdómalyf
Undirlyfjaflokkur:
Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið
ATC flokkur:
C09DA06
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:
100 stk. þynnupakkningar
Ábendingar:
Candpress Comp er notað til meðferðar við háum blóðþrýstingi (háþrýstingi) hjá fullorðnum sjúklingum. Það inniheldur tvö virk efni: candesartan cilexetil og hýdróklórtíazíð og vinna þau saman að því að lækka blóðþrýstinginn. Candesartan cilexetil tilheyrir flokki lyfja sem nefnast angíótensín II viðtakablokkar og veldur slökun og víkkun á æðum og hjálpar þannig við að lækka blóðþrýstinginn.

Hýdróklórtíazíð tilheyrir flokki lyfja sem nefnast þvagræsilyf (bjúgtöflur) og hjálpar líkamanum að losna við vatn og sölt eins og natríum í þvagi og hjálpar þannig við að lækka blóðþrýstinginn.

  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Candpress Comp (PDF 245,31kb) 

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Candpress Comp (PDF 112,77kb)