Candesartan cilexetil (virka innihaldsefnið í Candpress) er hjartalyf og tilheyrir flokki lyfja sem nefnast angíótensín II viðtakablokkar. Það veldur slökun og víkkun á æðum og hjálpar þannig við að lækka blóðþrýstinginn. Það auðveldar einnig hjartanu að dæla blóði til allra hluta líkamans.
Candesartan cilexetil er notað til meðferðar við
- háum blóðþrýstingi (háþrýstingi) hjá fullorðnum sjúklingum.
- meðferðar hjá fullorðnum sjúklingum með hjartabilun, sem eru með skerta starfsemi hjartavöðvans, samhliða Angiotensin Converting Enzyme (ACE) hemlum eða þegar ekki er hægt að nota ACE hemla (ACE hemlar eru lyfjaflokkur sem notaður er við meðhöndlun á hjartabilun).