Ísland
Darazíð
Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Enalapril/Hydrochlorothiazide 22,5 mg
Lyfjaflokkur:
Hjarta- og æðasjúkdómalyf
Undirlyfjaflokkur:
Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið
ATC flokkur:
C09BA02
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:
22,5 mg - 100 stk
Ábendingar:
Darazíð inniheldur tvö virk efni, enalapríl og hýdróklórtíazíð og er notað við háum blóðþrýstingi þegar nægilegur árangur hefur ekki náðst með einu lyfi og nauðsynlegt þykir að nota tvö lyf. Enalapríl tilheyrir flokki lyfja sem kallast ACE-hemlar. Lyf í honum hamla myndun á angíótensín II, eins öflugasta æðaþrengjandi efnis í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II vatnsútskilnað í nýrum, eykur rúmmál blóðs og stuðlar frekar að því að blóðþrýstingur hækkar. Lyfin hindra einnig niðurbrot æðavíkkandi efnis í líkama, bradýkíníns. Þau lækka því blóðþrýsting með því að víkka út æðar og skilja vatn út úr líkamanum. Hýdróklórtíazíð flokkast til þvagræsilyfja. Lyfið lækkar blóðþrýsting, eykur þvagmyndun í nýrum og losar líkamann við vökva. Samfara aukinni vatnslosun eykur hýdróklórtíazíð útskilnað margra salta, aðallega kalíums. Enalapríl getur hins vegar dregið úr þessu kalíumtapi. Í lyfinu Darazíð eru þessi tvö virku efni gefin saman til þess að ná fram enn meiri lækkun á blóðþrýstingi en mögulegt væri þegar þau eru gefin hvort í sínu lagi.
SPC (upplýsingar fyrir fagfólk)
Darazíð
Vörulisti
Lausasölulyf
Húð- og heilsuvörur
Tannverndarvörur
Umboð
Sölutengiliðir
Fræðsluefni
Panta bæklinga