Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Daren

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Enalapril 5 mg, 10 mg og 20 mg
Lyfjaflokkur:
Hjarta- og æðasjúkdómalyf
Undirlyfjaflokkur:
Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið
ATC flokkur:
C09AA02
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:

5 mg - 30 og 100 stk.

10 mg - 30 og 100 stk.

20 mg - 30 og 100 stk.

Ábendingar:
Enalapríl tilheyrir flokki lyfja sem kallast ACE-hemlar. Lyf í honum hamla myndun angíótensíns II, eins öflugasta æðaþrengjandi efnis í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II vatnsútskilnað í nýrum, og það eykur rúmmál blóðs og stuðlar frekar að því að blóðþrýstingur hækkar. Lyfin hindra einnig niðurbrot æðavíkkandi efnis í líkamanum, bradýkíníns. Lyfin lækka því blóðþrýsting með því að víkka út æðar og skilja vatn út úr líkamanum. Enalapríl er notað við háþrýstingi og hjartaöng, og líka til þess að minnka álag á hjartasjúklingum með hjartabilun. Þegar lyfið er gefið við hjartabilun eru þvagræsilyf, t.d. hýdróklórtíazíð, oft notuð samtímis.
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (upplýsingar fyrir fagfólk)

Daren