Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Dehydratin neo

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Hydrochlorothiazide 25 mg.
Lyfjaflokkur:
Hjarta- og æðasjúkdómalyf
Undirlyfjaflokkur:
Þvagræsilyf (diuretica)
ATC flokkur:
C03AA03
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku    
Pakkningastærðir:

20 töflur, þynnupakkning

 

Dehydratin neo er nýtt lyf sem kom í stað lyfsins Aquázíð sem nýlega var tekið af markaði. Dehydratin neo inniheldur 25 mg hýdróklórtíazíð, töflurnar eru með deiliskoru. Vinsamlega hafið samband við Actavis í síma 550-3300 ef frekari upplýsinga er óskað.

Ábendingar:

Dehydradin Neo er hjarta og æðasjúkdómalyf og er ætlað til meðferðar við háþrýstingi, bjúg af ýmsum toga og nýranþvaghlaupi.

Lyfið inniheldur virka efnið hýdróklórtíazíð sem er tíazíð þvagræsilyf sem eykur útskilnað natríums í þvagi.

Lyfið dregur úr frásogi natríum og klóríð jóna í fjarhluta nýrnapípla og safnrásum nýrungsins. Vegna þessarar verkunar eykst þvagræsing, þar sem natríum og klóríð jónir eru skildar út í jöfnum mólhlutföllum og samsvarandi magn af vatni.

  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (upplýsingar fyrir fagfólk)

Dehydratin neo