Ísland
Doxorubicin Actavis
Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Doxórúbicínhýdróklóríð. Eftir blöndun inniheldur hver ml af lausn 2 mg af doxórúbicínhýdróklóríði.
Lyfjaflokkur:
Æxlishemjandi lyf og lyf til ónæmistemprunar
Undirlyfjaflokkur:
Æxlishemjandi lyf (antineoplastic agents)
ATC flokkur:
L01DB01
Lyfjaform og notkun:
Stungulyfsstofn, lausn.
Samþjappað rautt duft með gljúpri áferð.
Pakkningastærðir:
10 og 50 mg hettuglös
Ábendingar:
Doxorubicin Actavis er ætlað til meðferðar við
- Smáfrumukrabbameini í lungum
- Brjóstakrabbameini
- Langt gengnu krabbameini í eggjastokkum
- Til að koma í veg fyrir útbreiðslu grunnlægs krabbameins innan þvagblöðru eftir brottnám þvagblöðrukrabbameins um þvagrás hjá sjúklingum þar sem veruleg hætta er á endurkomu
- Altæk (systemic) meðferð á staðbundnu langt gengnu krabbameini í þvagblöðru eða sem myndað hefur meinvörp
- Meðferð fyrir (neoadjuvant) eða eftir (adjuvant) meðferð við beinsarkmeini
- Langt gengnu sarkmeini í mjúkvefjum hjá fullorðnum
- Ewings sarkmeini
- Hodgkins eitlakrabbameini
- Mjög illkynja eitlakrabbameini sem ekki er af Hodgkins gerð
- Að koma á og viðhalda sjúkdómshléi (induction and consolidation treatment) þegar um brátt eitilfrumukrabbamein er að ræða
- Bráðu merglingskímfrumuhvítblæði (myeloblastic leukaemia)
- Langt gengum mergæxlum (multiple myeloma)
- Langt gengnu eða endurteknu krabbameini í legslímhúð
- Wilms æxli (við mjög illkynja afbrigðum á II. stigi, við öllum hærri stigum [III-IV])
- Langt gengnu totu (papillary)/hnúta (follicular) krabbameini í skjaldkirtli
- Villivaxtar (anaplastic) krabbameini í skjaldkirtli
- Langt gengnu taugakímfrumuæxli (neuroblastoma)
- Langt gengnu krabbameini í maga
Doxórúbicín er oft notað í samsettum krabbameinsmeðferðaráætlunum ásamt öðrum krabbameinslyfjum.
SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)
Doxorubicin Actavis (PDF 117,91kb)
Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)
Doxorubicin Actavis (PDF 82,55kb)
Vörulisti
Lausasölulyf
Decubal húðvörur
Decubal húðvörur
Decubal Ecological
Decubal Sun
Decubal Men
Tannverndarvörur
Flux
Heilsuvörur
Umboð
Sölutengiliðir
Forsida
Meðferð persónuupplýsinga
Lagalegur fyrirvari
Veftré
Reykjavíkurvegi 76-78, 220 Hafnarfirði • Simi 550 3300 • Fax 550 3301 •
actavis@actavis.is
© Actavis 2012