Doxylin er breiðvirkt sýklalyf. Það inniheldur virka efnið doxýcýklín sem er tetracýklín. Það hefur bakteríuhemjandi áhrif vegna hömlunar á nýmyndun próteina í örverum.
Doxylin er notað við sýkingum af völdum tetracyclinnæmra loftsækinna og loftfælinna Gram jákvæðra og Gram neikvæðra sýkla, chlamydia, mycoplasma, spirochaeta, rickettsia og actinomyceta. Dæmi um sýkingar sem lyfið er notað við: Berkju- og lungnabólga, húðsjúkdómar og kynsjúkdómar (einkum klamýdía).
Lyfið hefur engin áhrif á veirur sem t.d. valda venjulegu kvefi og flensu.