Actavis think smart medicine

Ísland


Esopram

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Escitalopram 5 mg, 10 mg, 15 mg, 20 mg
Lyfjaflokkur:
Tauga- og geðlyf
Undirlyfjaflokkur:
Geðlyf (psychoanaleptica)
ATC flokkur:
N06AB10
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Filmuhúðaðar töflur til inntöku
Pakkningastærðir:

 

 5 mg - 100 stk. þynnupakkning

10 mg - 28 stk. þynnupakkning

10 mg - 100 stk. töfluglas

15 mg - 28 stk. þynnupakkning

15 mg - 100 stk. töfluglas

20 mg - 28 stk. þynnupakkning

20 mg - 100 stk. töfluglas

 

Ábendingar:
Esopram er þunglyndislyf í flokki sérhæfðra serótónín endurupptökuhemla og inniheldur virka efnið escítalópram. Lyfið er ætlað til meðferðar við alvarlegum þunglyndislotum, ofsahræðslu með eða án víðáttufælni, félagsfælni og þráhyggju-árátturöskun (OCD). Virkni lyfsins má skýra með því að escítalópram er sértækur hemill á serótónín endurupptöku og eykur þannig magn boðefnisins á taugamótunum. Escítalópram er mjög líkt cítalópram (Oropram).
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Esopram (PDF 149kb)

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Esopram (PDF 124,17kb)