Felódipín tilheyrir flokki lyfja sem kallast kalsíumblokkarar. Lyf í honum hindra flæði kalsíums inn í vöðvafrumur, en kalsíum er nauðsynlegt fyrir samdrátt vöðvafrumna. Vöðvafrumur í líkamanum innihalda mismikið af kalsíum og eru því ekki allar jafn háðar kalsíumflæði inn í frumuna. Áhrifa kalsíumblokkara gætir því mest hjá frumum með lítið kalsíum, þ.e. vöðvafrumum í æðaveggjum og hjartavöðva.
Kalsíumblokkarar eru flokkaðir innbyrðis eftir því hvort áhrif þeirra beinist aðallega að æðum eða hjarta. Felódipín hefur fyrst og fremst æðavíkkandi áhrif. Lyfið víkkar bæði kransæðar og slagæðar, blóðþrýstingur lækkar og blóðflæði til hjartavöðva eykst. Áhrif felódipíns á hjartavöðva eru minni en hjá öðrum lyfjum í þessum flokki. Felódipín er notað við háþrýstingi og hjartaöng.