Ísland
Flúoxetín Actavis, lausnartöflur
Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Fluoxetine 20 mg
Lyfjaflokkur:
Tauga- og geðlyf
Undirlyfjaflokkur:
Geðlyf (psychoanaleptica)
ATC flokkur:
N06AB03
Lyfjaform og notkun:
Lausnartöflur til inntöku
Pakkningastærðir:
20 mg 30 og 100 stk. þynnupakkning
Ábendingar:
Flúoxetín Actavis er geðdeyfðarlyf og tilheyrir hópi lyfja sem hafa áhrif á miðtaugakerfið. Þessi lyf hafa sérhæfð áhrif á virkni taugaboðefnisins serótóníns í heila. Talið er að breytingar á starfsemi taugafrumnanna sem nota þetta boðefni séu ein af orsökum geðdeyfðar. Eldri geðdeyfðarlyf eru ekki eins sérhæfð og hafa áhrif á fleiri boðefni. Flúoxetín og skyld lyf virðast hafa svipaða virkni og eldri lyfin á einkenni geðdeyfðar, þau bæta skap, auka líkamlega virkni, bæta matarlyst og auka áhuga á daglegu lífi. Nýrri lyfin hafa þó ekki eins róandi verkun og eru laus við margar alvarlegar aukaverkanir eldri lyfjanna. Einnig er minni hætta á eitrunum af völdum nýrri lyfjanna. Aftur á móti er líklegra að flúoxetín valdi einkennum eins og taugaveiklun, spennu og svefntruflunum, auk þess sem ógleði er algeng aukaverkun þess. Flúoxetín er notað við alvarlegu þunglyndi, þráhyggju-áráttusýki og lotugræðgi (bulimia nervosa).
SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)
Flúoxetín lausnartöflur (PDF 102,83kb)
Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)
Flúoxetín lausnartöflur (PDF 77,15kb)
Vörulisti
Lausasölulyf
Decubal húðvörur
Decubal húðvörur
Decubal Ecological
Decubal Sun
Decubal Men
Tannverndarvörur
Flux
Heilsuvörur
Umboð
Sölutengiliðir
Forsida
Meðferð persónuupplýsinga
Lagalegur fyrirvari
Veftré
Reykjavíkurvegi 76-78, 220 Hafnarfirði • Simi 550 3300 • Fax 550 3301 •
actavis@actavis.is
© Actavis 2012