Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Fludent Banan

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Natriumfluorid samsvarandi 0,25 af flúor.
Lyfjaflokkur:
Meltingarfæra- og efnaskiptalyf
Undirlyfjaflokkur:
Munn- og tannlyf (stomatologica)
ATC flokkur:
A01AA01
Lausasölulyf
Lyfjaform og notkun:
Munnsogstafla
Pakkningastærðir:
200 töflur
Ábendingar:
Fludent munnsogstöflur eru notaðar til varnar gegn tannátu (tannskemmdum) hjá þeim sem eru í aukinni hættu á tannskemmdum, m.a. vegna munnþurrks (t.d. vegna notkunar ákveðinna lyfja), tannparta eða fasts tanngervis eða að ráði tannlæknis/læknis eða tannfræðings.
Þegar Fludent munnsogstafla er sogin leysist flúor úr töflunni út í munnvatnið. Síðan fer flúor í glerunginn og styrkir hann gegn tannátu (tannskemmdum).
Flúor dregur úr virkni tannátu og græðir byrjandi tannátusár. Flúor virkar aðallega staðbundið með því að hemja úrkölkun og flýta endurkölkun glerungs og steinungs. Munnsogstaflan eykur munnvatnsframleiðslu og eykur flúorinnihald munnvatnsins.
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (upplýsingar fyrir fagfólk)

Fludent Banan

Fludent Banan