Actavis think smart medicine

Ísland


Flunitrazepam Mylan

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Flunitrazepam 1 mg
Lyfjaflokkur:
Tauga- og geðlyf
Undirlyfjaflokkur:
Geðlyf (psycholeptica)
ATC flokkur:
N05CD03
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:
1 mg - 30 stk og 100 stk.
Ábendingar:
Flúnítrazepam er svefnlyf sem er notað í skammtímameðferð við svefnleysi. Lyfið dregur einnig úr kvíða og hefur vöðvaslakandi áhrif. Flúnítrazepam tilheyrir flokki lyfja sem kallast benzódíazepín. Öll lyf í þessum flokki auka áhrif hamlandi boðefnisins (GABA) á vissum stöðum í heila. Þau hafa öll róandi, kvíðastillandi, krampastillandi og vöðvaslakandi áhrif. Munur á benzódíazepínlyfjum felst í því hvað þau eru sérhæfð og hversu langur verkunartími þeirra er. Flúnítrazepam styttir tímann sem það tekur fólk að sofna, fækkar andvökum og lengir svefntíma. Flúnítrazepam raskar eðlilegu svefnmynstri að nokkru leyti á þá leið að draumsvefn og djúpur svefn skerðist, en sé það aðeins notað í stuttan tíma hafa breytingarnar ekki áhrif á svefn.
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Flunitrazepam Mylan (PDF 23,7kb)

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Flunitrazepam Mylan (PDF 23,48kb)