Flux flúormunnskolin eru með háum styrk af flúor og er mælt með notkun þeirra fyrir þá sem eru í sérstökum áhættuhópi við tannskemmdum.
Flux fjölskyldan samanstendur af þrem munnskolum:
- - Flux Junior
- - Flux Klorhexidin
- - Flux
Flux Klorhexidin

0,12% klórhexidín og 0,2% NaF. 250 ml flaska.
Flux Klorhexidin er bakteríudrepandi munnskol sem inniheldur einnig flúor. Vinnur gegn bakteríum og sýkingum í munni og er fyrirbyggjandi gegn tannskemmdum. Flux Klorhexidin er með fersku mintubragði. Inniheldur ekki alkóhól.
Flux Klorhexidin er fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára.
Notkun: Þegar flaskan er kreist fæst 10 ml skammtur. Skolið munninn með 10 ml af Flux Klorhexidin munnskoli eftir að hafa burstað tennurnar vandlega í um mínútu og spýtið svo.
Flux Junior
0,05% Flúormunnskol. Inniheldur natríumflúoríð. 250 ml flaska.
Flux Junior er með góðu ávaxta-og mintubragði fyrir börn 6-12 ára.
Að skola daglega með flúorlausn er áhrifarík leið til að verjast tannskemmdum og góð viðbót við tannburstun með flúortannkremi. Samkvæmt ráðleggingum íslenskra tannlækna er mælt með viðbótarflúor fyrir börn í áhættuhópum við auknum tannskemmdum.
Börn í áhættuhóp eru:
Börn sem taka inn lyf daglega vegna veikinda eða fötlunar
Börn með tannskemmdir sem erfitt er að ráða við og/eða mikið fylltar tennur
Börn sem eru að fá nýjar fullorðinstennur eða eru í tannréttingum
Börn sem fá oft að borða milli mála
Börn sem drekka mikið af gos- og svaladrykkjum
Börn með illa hirtar tennur
Börn sem fara sjaldan til tannlæknis
Skammtastærð ef tannlæknir hefur ekki ráðlagt annað: 10 ml til daglegrar notkunar fyrir börn 6-12 ára.
Notkun: Þegar flaskan er kreist fæst 10 ml skammtur. Skolið munninn með 10 ml af Flux Junior munnskoli eftir að hafa burstað tennurnar vandlega í um mínútu og spýtið svo. Til að ná sem bestum árangri ætti ekki að borða né drekka í klukkutíma eftir notkun.
FLUX
0,2% Flúormunnskol. Inniheldur natríumflúoríð. 500 ml flaska.
Regluleg notkun Flux munnskols styrkir tennur og fyrirbyggir tannskemmdir. Flux ætti að nota sem viðbót við tannburstun með flúortannkremi.
Skammtastærð ef tannlæknir hefur ekki ráðlagt annað: 10 ml til daglegrar notkunar fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára.
Notkun: Þegar flaskan er kreist fæst 10 ml skammtur. Skolið munninn með 10 ml af Flux munnskoli eftir að hafa burstað tennurnar vandlega í um mínútu og spýtið svo. Til að ná sem bestum árangri ætti ekki að borða né drekka í klukkutíma eftir notkun.
Nánari upplýsingar á http://www.fluxfluor.is