Actavis think smart medicine

Ísland


HEILSUVÖRUR

Lactocare daily

Lactohurt Daily

Lactocare daily er einstök blanda mjólkursýrugerla sem er sérstaklega hugsuð til daglegrar notkunar. Inntaka mjólkursýrugerla eru m.a. talið bæta upptöku næringarefna úr fæðu og halda þarmaflórunni í jafnvægi.

Lactocare daily inniheldur 7 mismunandi tegundir lifandi gerla sem allir þjóna ákveðnum tilgangi og vinna hvor með öðrum að bættri þarmaflóru, draga m.a. úr uppþembu og lofti í ristli og þörmum.

Lactocare daily inniheldur eftirfarandi gerla:

Streptococcus thermophilus  2,3 milljarða
Lactobacillus plantarum 2,3 milljarða
Lactobacillus acidophilus 0,57 milljarða
Lactobacillus rhamnosus 0,57 milljarða
Bifidobacterium lactis 0,57 milljarða
Bifidobacterium longum 0,34 milljarða
Bifidobacterium breve 0,34 milljarða

Hvert hylki inniheldur því samanlagt um 7 milljarða lifandi mjólkursýrugerla sem saman stuðla að bættri heilsu.
Ráðlagður skammtur er 1 hylki á dag. Hylkið má gleypa með glasi af vatni eða dreifa út á mat.

Innihald hylkisins er með tvöfaldri Duolac húðun sem tryggir virkni og geymsluþol.

Lactocare travel

Lactocare TravelLactocare travel inniheldur sérvalda gerla sem geta fyrirbyggt röskun þarmaflórunnar. Þarmaflóran getur auðveldlega raskast þegar nýjar bakteríur eru innbyrtar bæði í mat og drykk.

Lactocare travel er notað til að fyrirbyggja þau óþægindi sem röskun þarmaflórunnar getur haft í för með sér þegar ferðast er erlendis.

Lactocare travel inniheldur 5 tegundir lifandi mjólkursýrugerla sem allir stuðla að jafnvægi í ristli og þörmum.

Lactocare travel inniheldur eftirfarandi gerla:

Lactobacillus acidophilus 430 milljónir
Lactobacillus plantarum 410 milljónir
Bifidobacterium lactis 540 milljónir
Streptococcus thermophilus   540 milljónir
Bifidobacterium breve 410 milljónir

Hver tafla inniheldur samanlagt um 2,3 milljarða lifandi mjólkusýrugerla sem saman stuðla að bættri heilsu.
Ráðlagt er að taka 1 töflu á dag 5 dögum áður en fyrirhugað ferðalag hefst. Á meðan á ferðalaginu stendur skal taka inn 1 töflu daglega.

Innihald töflunnar er með tvöfaldri Duolac húðun sem tryggir virkni og geymsluþol. 
 

  • til baka
  • prenta
  • senda