Actavis think smart medicine

Ísland


Íbúfen

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Ibuprofen 200 mg, 400 mg og 600 mg
Lyfjaflokkur:
Vöðvasjúkdóma- og beinagrindarlyf
Undirlyfjaflokkur:
Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf (antiinflammatorica og antirheumatica)
ATC flokkur:
M01AE01
Fáanlegt án lyfseðils
Lyfjaform og notkun:
Filmuhúðaðar töflur til inntöku
Pakkningastærðir:

200 mg 20 stk.

400 mg 30stk. og 100 stk.

600 mg 30 stk. og 100 stk.

Íbúfen 200 mg  20 stk. og 400 mg 30 stk. fást án lyfseðils.

Ábendingar:
Íbúfen er bólgueyðandi lyf með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Íbúprófen dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum, en þau valda m.a. bólgumyndun. Íbúprófen er notað við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu, höfuðverk og sem verkjalyf eftir minni háttar aðgerðir. Íbúprófen er einnig notað til að lækka hita hjá börnum.
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Íbúfen (PDF 25,4kb)

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Íbúfen (PDF 23,03kb)

Actavis Íbúfen