Ísland
Indometacin Actavis
Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Indometacin 25 mg og 50 mg
Lyfjaflokkur:
Vöðvasjúkdóma- og beinagrindarlyf
Undirlyfjaflokkur:
Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf (antiinflammatorica og antirheumatica)
ATC flokkur:
M01AB01
Lyfjaform og notkun:
Hylki, hörð, til inntöku
Pakkningastærðir:
28 stk. þynnupakkning
Ábendingar:
Indometacin Actavis inniheldur virka efnið indometacin. Indometacin er bólgueyðandi gigtarlyf sem ekki er steri (NSAID lyf), með verkjastillandi og hitalækkandi eiginleika. Verkjastillandi eiginleikar lyfsins hafa verið raktir til bæði miðlægra og útlægra áhrifa, sem er ólíkt bólgueyðandi eiginleikum þess.
Indometacin Actavis er ráðlagt við eftirfarandi:
- virkri iktsýki, slitgigt, hryggikt, slitgigt í mjaðmarlið, bráðum stoðkerfiskvillum, þvagsýrugigt og þursabiti.
- bólgum, verkjum eða bjúg eftir bæklunaraðgerðir.
- frumkomnum tíðaverkjum og tengdum einkennum.
Þar sem indometacin er ekki einfalt verkjalyf, skal takmarka notkun þess við ofangreindar aðstæður.
Skammta þarf að stilla vandlega í samræmi við þarfir hvers sjúklings. Til að draga úr líkum á truflunum í meltingarfærum skal alltaf taka Indometacin hylki með mat, mjólk eða sýrubindandi lyfi og hefja meðferð við langvinnum kvillum með litlum skammti og auka hann síðan eftir þörfum.
SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)
Indometacin Actavis (PDF 86,3kb)
Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)
Indometacin Actavis (PDF 63,80kb)
Vörulisti
Lausasölulyf
Decubal húðvörur
Decubal húðvörur
Decubal Ecological
Decubal Sun
Decubal Men
Tannverndarvörur
Flux
Heilsuvörur
Umboð
Sölutengiliðir
Forsida
Meðferð persónuupplýsinga
Lagalegur fyrirvari
Veftré
Reykjavíkurvegi 76-78, 220 Hafnarfirði • Simi 550 3300 • Fax 550 3301 •
actavis@actavis.is
© Actavis 2012