Actavis think smart medicine

Ísland


Irinotecan Actavis

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Írínótekan hýdróklóríð þríhýdrat 20 mg/ml
Lyfjaflokkur:
Æxlishemjandi lyf og lyf til ónæmistemprunar
Undirlyfjaflokkur:
Æxlishemjandi lyf (antineoplastic agents)
ATC flokkur:
L01XX19
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Innrennslisþykkni, lausn
Pakkningastærðir:
1 x 5 ml hettuglös
Ábendingar:

Irinotecan Actavis er ætlað til meðferðar hjá sjúklingum með langt gengið krabbamein í ristli/ endaþarmi (colorectal):

- ásamt 5-flúoróúracíli og fólínínsýru hjá sjúklingum sem hafa ekki áður verið meðhöndlaðir með krabbameinslyfjum við langt gengnum sjúkdómi

- eitt sér hjá sjúklingum, þegar hefðbundin meðferð samkvæmt meðferðaráætlun sem felur í sér 5-flúoróúracíl hefur ekki borið árangur.



Írínótekan ásamt cetuximabi er ætlað til meðferðar sjúklinga með krabbamein í ristli/endaþarmi, með meinvörpum sem tjá EGFR (viðtaka vaxtaþáttar húðþekju (epidermal growth factor receptor), þegar meðferð með írínótekani ásamt frumueyðandi meðferð hefur ekki borið árangur.

Írínótekan gefið samhliða 5 flúoróúrasíli, fólínínsýru eða bevacizumabi er ætlað sem fyrsti meðferðarvalkostur fyrir sjúklinga með krabbamein í ristli eða endaþarmi með meinvörpum.

Irinotecan Actavis er jafngilt frumlyfinu Campto.
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Irinotecan Actavis (PDF 163,24kb)

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Irinotecan Actavis (PDF 83,04kb)