Actavis think smart medicine

Ísland


Katópríl

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Kaptopril 25 mg og 50 mg
Lyfjaflokkur:
Hjarta- og æðasjúkdómalyf
Undirlyfjaflokkur:
Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið
ATC flokkur:
C09AA01
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:

25 mg - 100 stk.

50 mg - 100 stk.

 

Ábendingar:
Kaptópríl tilheyrir flokki lyfja sem kallast ACE-hemlar. Lyf í þessum flokki hamla myndun angíótensíns II, en það er eitt öflugasta æðaþrengjandi efni í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II útskilnað vatns í nýrum, við það eykst rúmmál blóðs og stuðlar þannig enn frekar að hækkun blóðþrýstingsins. Lyfin hindra líka niðurbrot á æðavíkkandi efni í líkamanum, bradýkíníni. Kaptópríl er notað við háþrýstingi og hjartaöng og til þess að minnka álag á hjartað hjá sjúklingum með hjartabilun. Þegar lyfið er gefið við hjartabilun eru þvagræsilyf oft notuð samtímis. Kaptópríl er líka notað til að fyrirbyggja nýrnaskemmdir hjá sykursýkisjúklingum með insúlínháða sykursýki.
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Katópríl (PDF 96,76kb)  

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Katópríl (PDF 23,87kb)