Lanser inniheldur virka efnið lansóprazól sem tilheyrir flokki prótónupumpuhemla. Lyfið hefur bein, skammtaháð hamlandi áhrif á ensímið H+, K+ ATPasa sem stýrir magasýruseytingu í paríetal-frumum magans.
Lanser er lyf til meðferðar við:
• Skeifugarnar- og magasári
• Bólgu í vélinda vegna bakflæðis
• Fyrirbyggjandi meðferðar við bólgu í vélinda vegna bakflæðis
• Upprætingarmeðferðar við Helicobacter pylori, gefið samhliða viðeigandi sýklalyfjameðferð við sárum sem tengjast sýkingu af völdum H.pylori
• Góðkynja maga- og skeifugarnarsárum sem tengjast notkun á bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID).
• Fyrirbyggjandi meðferðar við maga- og skeifugarnarsárum sem tengjast notkun á bólgueyðandi gigtarlyfjum hjá þeim sem þurfa viðvarandi meðferð með slíkum lyfjum
• Einkennameðferð við vélindabakflæði
• Zollinger-Ellison heilkenni
Lanser er fáanlegt í styrkleikanum 30 mg í 98 stk pakkningu.
Lyfið sem er sýruþolin hylki á að taka að morgni, einu sinni á dag nema þegar það er notað til að uppræta H. Pylori, en þá ber að taka lyfið tvisvar á dag, einu sinni að morgni og einu sinni að kvöldi.