Actavis think smart medicine

Ísland


Latanoprost Actavis

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Latanoprost 50 míkróg/ml
Lyfjaflokkur:
Augn- og eyrnalyf
Undirlyfjaflokkur:
Augnlyf
ATC flokkur:
S01EE01
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Augndropar
Pakkningastærðir:

2,5 ml glas

3 x 2,5 ml glas

Ábendingar:
Virka innihaldsefnið latanoprost er prostaglandin F2 hliðstæða sem er sértækur prostanóíð FP viðtakaörvi og dregur úr augnþrýstingi með því að auka útflæði augnvökva. Latanoprost er ísóprópýlester forlyf og óvirkt sem slíkt en þegar það fer um hornhimnuna er það vatnsrofið í latanoprostsýru og verður líffræðilega virkt.
Latanoprost er notað til lækkunar á augnþrýstingi (intraocular pressure (IOP)) hjá sjúklingum með gleiðhornsgláku (open angle glaucoma) og hækkaðan augnþrýsting. Áhrif lyfsins koma fram um 3-4 klst. eftir gjöf og næst hámarksverkun eftir 8-12 klst. Lækkun á augnþrýstingi varir minnst í 24 klst.
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Latanoprost Actavis (PDF 81,43kb)

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Latanoprost Actavis (PDF 98,22kb)