Viðbótarmeðferð (adjuvant treatment) hjá konum eftir tíðahvörf, með brjóstakrabbamein sem er jákvætt fyrir hormónaviðtökum, hvort sem það hefur borist til eitla í brjósti eða holhönd, eða ekki (early breast cancer).
Framlengd viðbótarmeðferð (extended adjuvant treatment) við hormónaháðu brjóstakrabbameini hvort sem það hefur borist til eitla í brjósti eða holhönd, eða ekki (early breast cancer), hjá konum eftir tíðahvörf, sem áður hafa fengið hefðbundna viðbótarmeðferð með tamoxifeni í 5 ár.
Fyrsta val við meðferð hjá konum með langt gengið hormónaháð brjóstakrabbamein eftir tíðahvörf.
Langt gengið brjóstakrabbamein sem hefur komið fram að nýju eða versnað hjá konum eftir eðlileg eða framkölluð tíðahvörf, sem hafa áður fengið meðferð með andestrogenum.
Ekki hefur verið sýnt fram á verkun hjá sjúklingum með brjóstakrabbamein sem eru neikvæð fyrir hormónaviðtökum.