Actavis think smart medicine

Ísland


Levetiracetam Actavis

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Levetíracetam 250, 500 og 1000 mg
Lyfjaflokkur:
Tauga- og geðlyf
Undirlyfjaflokkur:
Flogaveikilyf (antiepileptica)
ATC flokkur:
N03AX14
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Filmuhúðaðar töflur til inntöku
Pakkningastærðir:
100 stk. þynnupakkningar
Ábendingar:

Levetiracetam Actavis er ætlað til einlyfjameðferðar við hlutaflogum með eða án síðkominna alfloga, hjá sjúklingum frá 16 ára aldri, með nýgreinda flogaveiki.

Levetiracetam Actavis er ætlað ásamt öðrum lyfjum
• til meðferðar handa fullorðnum, börnum og ungabörnum frá 1 mánaðar aldri með
flogaveiki, þegar um er að ræða hlutaflog (partial onset seizures) með eða án síðkominna alfloga.
• til meðferðar við vöðvakippaflogum (myoclonic seizures) hjá fullorðnum og unglingum, 12 ára eða eldri, með vöðvakippaflog sem koma fram á unglingsárum (juvenile myoclonic
epilepsy).
• til meðferðar við frumkomnum þankippaalflogum (primary generalised tonic-clonic seizures) hjá fullorðnum og unglingum frá 12 ára aldri með sjálfvakta flogaveiki.

Verkunarháttur:

Enn sem komið er hefur verkunarháttur levetíracetams ekki verið skýrður að fullu en hann virðist vera frábrugðinn verkunarhætti flogaveikilyfja sem nú eru notuð. Rannsóknir in vitro og in vivo benda til þess að levetíracetam hafi ekki áhrif á grunneiginleika frumna og venjulegan taugaboðflutning.

Í rannsóknum in vitro hefur komið í ljós, að levetíracetam hefur áhrif á þéttni Ca2+ í taugum með því að hamla að hluta til Ca2+ rafboðum af gerð N og með því að draga úr losun Ca2+ úr forða í taugum. Auk þessa snýr það að hluta til við minnkun á rafboðum um GABA- og glýsínhlið af völdum zínks og β-karbólína.

Enn fremur hefur komið í ljós í rannsóknum in vitro, að levetíracetam binst sértækum stað í heilavef nagdýra. Þessi bindistaður er prótein 2A í taugamótablöðrum, sem talið er að sé bendlað við samruna blaðra og losun taugaboðefnis úr frumum.

Levetíracetam og skyldar hliðstæður sýna vaxandi sækni í að bindast próteini 2A í taugamótablöðrum sem er í samræmi við hæfni þeirra til að koma í veg fyrir hljóðflog í músum. Þessar niðurstöður benda til þess að milliverkanir milli levetíracetams og próteins 2A í taugamótablöðrum virðist eiga þátt í að skýra verkun lyfsins á flog.

  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Levetiracetam Actavis - heildartexti (PDF 461,41kb)