Meðferð á sykursýki af tegund 2, einkum hjá sjúklingum í yfirþyngd, þegar stjórn á mataræði og hreyfing eingöngu skila sér ekki í nægilegri stjórn á blóðsykri.
Verkunarháttur:
Metformin er bígvaníð með blóðsykurslækkandi áhrif, lækkar bæði grunn og eftirmáltíðar glúkósu í plasma. Það örvar ekki seyti insúlíns og þess vegna veldur það ekki of lágum blóðsykri.
Metformin dregur úr framleiðslu lifrarglúkósu með því að hindra nýmyndun glúkósu og losun glýkógens í vöðva, það eykur insúlínnæmi, bætir upptöku og nýtingu glúkósu í úttaugakerfi og seinka frásogi glúkósu frá smáþörmum.
Metformin örvar framleiðslu innanfrumuglýkógens með því að verka á glýkógensýntasa.
Metformin eykur flutningsgetu allra glúkósu flutningshimnanna (GLUTs) sem eru þekktar fram að þessu.