Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Metoprolol Mylan

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Metoprolol 50 og 100 mg
Lyfjaflokkur:
Hjarta- og æðasjúkdómalyf
Undirlyfjaflokkur:
Beta-blokkar
ATC flokkur:
C07AB02
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:

50 mg - 100 stk.

100 mg - 100 stk.

Ábendingar:
Metóprólól tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkarar. Lyf í honum hindra áhrif boðefnanna adrenalíns og noradrenalíns á ýmis líffæri, t.d. hjarta og æðar. Beta-blokkarar skiptast í undirflokka eftir eiginleikum sínum, t.d. hvort þeir hafa sérhæfð áhrif á hjarta og hvort þeir komast í miðtaugakerfið eða ekki. Metóprólól hefur tiltölulega sérhæfð áhrif á hjartavöðva þar sem það minnkar samdráttarkraft hjartans og hjartsláttartíðni. Vegna sérhæfni sinnar hefur lyfið færri aukaverkanir en ósérhæfðir beta-blokkarar, það hefur t.d. lítil áhrif á lungu og astmasjúklingar þola það betur. Metóprólól er notað við háþrýstingi, hjartaöng, hjartsláttartruflunum og til að fyrirbyggja hjartadrep vegna kransæðastíflu. Metóprólól berst til miðtaugakerfisins og getur komið að gagni sem fyrirbyggjandi lyf við mígreni.
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (upplýsingar fyrir fagfólk)

Metoprolol Mylan