Ísland
Mianserin Mylan
Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Mianserin 10 mg og 30 mg.
Lyfjaflokkur:
Tauga- og geðlyf
Undirlyfjaflokkur:
Geðlyf (psychoanaleptica)
ATC flokkur:
N06AX03
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:
10 mg - 100 stk.
30 mg - 100 stk.
Ábendingar:
Míanserín er geðdeyfðarlyf. Verkunarmáti þess og efnafræði eru ólík öðrum geðdeyfðarlyfjum. Verkun þess er ekki að fullu þekkt en það hefur áhrif á virkni nokkurra taugaboðefna í heila. Míanserín hefur sambærileg áhrif á einkenni geðdeyfðar og önnur geðdeyfðarlyf, það bætir skap og matarlyst, eykur líkamlega virkni og áhuga á daglegu lífi. Þessi áhrif koma aðeins fram hjá sjúklingum með geðdeyfð en sjást ekki ef heilbrigðir taka lyfið. Auk þessara áhrifa virkar míanserín róandi og kvíðastillandi og hentar því vel ef kvíði eða svefntruflanir tengjast geðdeyfð. Helstu kostir míanseríns eru þeir að það veldur ekki aukaverkunum, eins og munnþurrki og sjóntruflunum, sem eru algengar aukaverkanir margra geðdeyfðarlyfja. Það veldur líka ekki eins alvarlegum eitrunareinkennum í yfirskömmtum og mörg önnur geðdeyfðarlyf.
SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)
Mianserin Mylan (PDF 45,2kb)
Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)
Mianserin Mylan (PDF 41,57kb)
Vörulisti
Lausasölulyf
Decubal húðvörur
Decubal húðvörur
Decubal Ecological
Decubal Sun
Decubal Men
Tannverndarvörur
Flux
Heilsuvörur
Umboð
Sölutengiliðir
Forsida
Meðferð persónuupplýsinga
Lagalegur fyrirvari
Veftré
Reykjavíkurvegi 76-78, 220 Hafnarfirði • Simi 550 3300 • Fax 550 3301 •
actavis@actavis.is
© Actavis 2012