Actavis think smart medicine

Ísland


Míron

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Mirtazapine 15 mg og 30 mg
Lyfjaflokkur:
Tauga- og geðlyf
Undirlyfjaflokkur:
Geðlyf (psychoanaleptica)
ATC flokkur:
N06AX11
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Filmuhúðaðar töflur til inntöku
Pakkningastærðir:

15 mg - 100 stk. töfluglös

30 mg - 30 og 100 stk. töfluglös

Ábendingar:
Mirtazapín er geðdeyfðarlyf. Það er efnafræðilega skylt geðdeyfðarlyfinu míanseríni en áhrif þessara tveggja lyfja á taugaboðefni í heila eru nokkuð ólík. Mirtazapín hefur áhrif á geðdeyfð og virkar jafnframt róandi. Mirtazapín hefur sambærileg áhrif og önnur geðdeyfðarlyf, það bætir skap og matarlyst, eykur líkamlega virkni og áhuga á daglegu lífi. Þessi áhrif koma aðeins fram hjá sjúklingum með geðdeyfð en sjást ekki ef heilbrigðir taka lyfið. Mirtazapín virkar auk þess róandi og hentar vel ef svefntruflanir fylgja geðdeyfð. Helstu kostir mirtazapíns eru þeir að það veldur ekki aukaverkunum eins og munnþurrki og sjóntruflunum, sem eru algengar aukaverkanir hjá mörgum geðdeyfðarlyfjum, og líka veldur það ekki eins alvarlegum eitrunareinkennum og mörg önnur geðdeyfðarlyf í yfirskömmtum.
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Míron (PDF 134,81kb)  

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Míron (PDF 98,88kb)