Actavis think smart medicine

Ísland


Montelukast Actavis

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Montelúkast 10 mg
Lyfjaflokkur:
Öndunarfæralyf
Undirlyfjaflokkur:
Lyf gegn teppusjúkdómum í öndunarvegi
ATC flokkur:
R03DC03
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Filmuhúðaðar töflur til inntöku
Pakkningastærðir:
100 stk. þynnupakkningar
Ábendingar:

Montelukast Actavis er ætlað til meðferðar við astma sem viðbótarmeðferð hjá sjúklingum 15 ára og eldri sem hafa vægan eða miðlungsmikinn viðvarandi astma, þegar meðferð með barksterum til innöndunar er ekki fullnægjandi og þegar notkun stuttverkandi beta-örva „eftir þörfum” veitir ekki fullnægjandi klíníska meðferð við astma. Montelukast Actavis getur einnig dregið úr einkennum árstíðarbundinnar ofnæmisbólgu í nefi hjá astmasjúklingum 15 ára og eldri.

Montelukast Actavis er einnig ætlað til fyrirbyggjandi meðferðar á astma hjá sjúklingum 15 ára og eldri þegar aðallega er um berkjusamdrátt við áreynslu að ræða.

  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Montelukast Actavis (PDF 81,17kb)

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Montelukast Actavis (PDF 69,40kb)