Actavis think smart medicine

Ísland


Oropram

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Citalopram 10 mg, 20 mg og 40 mg
Lyfjaflokkur:
Tauga- og geðlyf
Undirlyfjaflokkur:
Geðlyf (psychoanaleptica)
ATC flokkur:
N06AB04
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:

10 mg - 28 stk og 100 stk.

20 mg - 28 stk, 56 stk og 100 stk.

40 mg - 28 stk, 56 stk. og 100 stk.

Ábendingar:
Cítalópram er geðdeyfðarlyf. Það tilheyrir nýlegum flokki geðdeyfðarlyfja sem hafa sérhæfð áhrif á virkni taugaboðefnisins serótóníns í heila. Talið er að breytingar á starfsemi taugafrumna sem nota þetta boðefni séu hluti af orsökum geðdeyfðar. Eldri geðdeyfðarlyf eru ekki eins sérhæfð og hafa áhrif á fleiri boðefni. Cítalópram og skyld lyf virðast hafa svipaða virkni og eldri lyfin á einkenni geðdeyfðar, þau bæta skap, auka líkamlega virkni, bæta matarlyst og auka áhuga á daglegu lífi. Nýrri lyfin hafa þó ekki eins róandi verkun og eru laus við margar alvarlegar aukaverkanir eldri lyfjanna. Einnig er minni hætta á eitrunum af völdum nýrri lyfjanna. Aftur á móti er líklegra að cítalópram og skyld lyf valdi höfuðverk, svefntruflunum, minnkaðri kynhvöt eða kyngetu og ógleði. Flestar þessar aukaverkanir eru verstar í upphafi meðferðar en mildast með tímanum. Cítalópram er aðallega notað við geðdeyfð en getur einnig haft áhrif á ofsahræðslu (panic disorder).
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Oropram (PDF 132,68kb)  

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Oropram (PDF 103,13kb)