Ísland
Verkjastillandi lyf: höfuðverkur, tannverkur, tíðaverkur. Til hitalækkunar.Paratabs er verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Paratabs er notað við ýmiss konar verkjum, t.d. höfuðverk, tannverk, tíðaverk o.fl. Einnig við sótthita af völdum inflúensu, kvefs og annarra umgangspesta.Verkjastillandi verkun þess byggist á áhrifum á heilann og á vefi, þar sem verkurinn á upptök sín. Hitalækkandi verkun lyfsins byggist á áhrifum á undirstúku. Lyfið ertir ekki magaslímhúð og jafnvel sjúklingar með magasár þola lyfið. Lyfið hefur ekki áhrif á storknun blóðs né blæðingartíma.Sjúklingar með ofnæmi gegn acetýlsalicýlsýru þola yfirleitt vel parasetamól.
Paratabs, munndr. töflur.pdf