Actavis think smart medicine

Ísland


Paratabs

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Paracetamol 500 mg.
Lyfjaflokkur:
Tauga- og geðlyf
Undirlyfjaflokkur:
Verkjalyf (analgetica)
ATC flokkur:
N02BE01
Fáanlegt án lyfseðils
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:

20, 30, 100 stk.

20 stk. og 30 stk. eru fáanleg án lyfseðils.

Ábendingar:
Verkjastillandi lyf: höfuðverkur, tannverkur, tíðaverkur. Til hitalækkunar.
Paratabs er verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Paratabs er notað við ýmiss konar verkjum, t.d. höfuðverk, tannverk, tíðaverk o.fl. Einnig við sótthita af völdum inflúensu, kvefs og annarra umgangspesta.
Verkjastillandi verkun þess byggist á áhrifum á heilann og á vefi, þar sem verkurinn á upptök sín. Hitalækkandi verkun lyfsins byggist á áhrifum á undirstúku. Lyfið ertir ekki magaslímhúð og jafnvel sjúklingar með magasár þola lyfið. Lyfið hefur ekki áhrif á storknun blóðs né blæðingartíma.
Sjúklingar með ofnæmi gegn acetýlsalicýlsýru þola yfirleitt vel parasetamól.



 

  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Paratabs töflur (PDF 50,8kb)

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Paratabs töflur (PDF 33,84kb)

Paratabs 500mg