Actavis think smart medicine

Ísland


Pranolol

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Própranólólhýdróklóríð 20 mg
Lyfjaflokkur:
Hjarta- og æðasjúkdómalyf
Undirlyfjaflokkur:
Beta-blokkar
ATC flokkur:
C07AA05
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:
100 stk. töfluglös
Ábendingar:

Hjartaöng. Háþrýstingur. Vörn gegn hjartaáföllum eftir hjartadrep. Hjartsláttartruflanir, einkum ofanslegilshraðtaktur, til að draga úr sleglatíðni við gáttatif og aukaslögum í sleglum. Við einkennum ofstarfsemi skjaldkirtils. Til að fyrirbyggja mígreni. Góðkynja skjálfti af óþekktum uppruna. Sem viðbótarlyf með alfablokkum við krómfíklaæxli.

Verkunarháttur:

Helsti verkunarhátturinn er samkeppnishindrun á katekólamínum við adrenvirka betaviðtaka í hjarta og æðakerfi. Við lækkun hjartsláttartíðni og skerðingu á samdráttarhæfni hjartans dregur úr álagi á hjartað og þannig einnig súrefnisþörf. Aðrir verkunarhættir hafa ekki verið skýrðir að fullu. Própranólól hefur enga eigin adrenhermandi verkun.

  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Pranolol (PDF 36,41kb)

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Pranolol (PDF 52,65kb)