Ísland
Propranolol Mylan
Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Propanolol 10, 40 og 80 mg
Lyfjaflokkur:
Hjarta- og æðasjúkdómalyf
Undirlyfjaflokkur:
Beta-blokkar
ATC flokkur:
C07AA05
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:
10 mg - 100 stk.
40 mg - 100 stk.
80 mg - 100 stk.
Ábendingar:
Própranólól tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkarar. Lyf í honum hindra áhrif boðefnanna adrenalíns og noradrenalíns á ýmis líffæri eins og hjarta og æðar. Beta-blokkarar skiptast í undirflokka eftir eiginleikum, hvort þeir hafi sérhæfð áhrif á hjarta eða komist í miðtaugakerfið eða ekki. Própranólól hefur ekki sérhæfð áhrif á hjartavöðva. Þetta veldur mörgum af aukaverkunum þess þegar lyfið er notað við of háum blóðþrýstingi eða hjartsláttaróreglu, en breikkar um leið notkunarsvið þess. Própranólól er t.d. notað við hröðum hjartslætti vegna kvíða og skjálfta vegna ofvirkni skjaldkirtils. Própranólól er líka notað sem fyrirbyggjandi lyf við mígrenihöfuðverkjum. Própranólól stuðlar að samdrætti lungaberkja og þar með þrengingu loftvega. Lyfið er því ekki gefið sjúklingum með öndunarfærasjúkdóma á borð við astma, berkjubólgu eða lungnaþembu. Eins og aðrir beta-blokkarar hefur própranólól áhrif á stjórnun blóðsykurs og þarf að gæta varúðar sé lyfið gefið sykursjúkum.
SPC (upplýsingar fyrir fagfólk)
Propranolol Mylan
Vörulisti
Lausasölulyf
Húð- og heilsuvörur
Tannverndarvörur
Umboð
Sölutengiliðir
Fræðsluefni
Panta bæklinga