Ísland
Ramíl
Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Ramipril 2,5 mg, 5 mg, 10 mg
Lyfjaflokkur:
Hjarta- og æðasjúkdómalyf
Undirlyfjaflokkur:
Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið
ATC flokkur:
C09AA05
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:
2,5 mg 100 töflur
5 mg 100 töflur
10 mg 100 töflur
Ábendingar:
Ramíl inniheldur virka efnið ramipríl sem tilheyrir flokki svokallaðra ACE-hemla. Lyf í þessum flokki hamla myndun angíótensíns II, eins öflugasta æðaþrengjandi efnis í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II vatnsútskilnað í nýrum, og það eykur rúmmál blóðs og stuðlar frekar að því að blóðþrýstingur hækkar. Lyfin hindra einnig niðurbrot æðavíkkandi efnis í líkamanum, bradýkíníns. Lyfið veldur æðavíkkun og eykur útskilnað vatns út úr líkamanum og lækkar þannig blóðþrýsting og dregur úr álagi á hjartað.
Ramíl er notað gegn háþrýstingi og til þess að draga úr hættu á kransæðastíflu, heilablóðfalli eða dauðsföllum af völdum hjarta- og æðasjúkdóma hjá sjúklingum með kransæðasjúkdóma eða sykursýki af gerð 2 ásamt fleiri áhættuþáttum.
Ramíl getur einnig verndað nýrun og seinkað nýrnabilun hjá sjúklingum með nýrnasjúkdóm.
SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)
Ramíl (PDF 63,4kb)
Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)
Ramíl (PDF 73,10kb)
Vörulisti
Lausasölulyf
Decubal húðvörur
Decubal
Decubal Ecological
Decubal Sun
Decubal Men
Tannverndarvörur
Flux
Heilsuvörur
Umboð
Sölutengiliðir
Forsida
Meðferð persónuupplýsinga
Lagalegur fyrirvari
Veftré
Reykjavíkurvegi 76-78, 220 Hafnarfirði • Simi 550 3300 • Fax 550 3301 •
actavis@actavis.is
© Actavis 2012