Actavis think smart medicine

Ísland


Sertral

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Sertraline 50 mg og 100 mg
Lyfjaflokkur:
Tauga- og geðlyf
Undirlyfjaflokkur:
Geðlyf (psychoanaleptica)
ATC flokkur:
N06AB06
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:

50 mg - 28 stk. og 98 stk.

100 mg - 28 stk. og 98 stk.  

Ábendingar:
Sertralín er geðdeyfðarlyf. Það tilheyrir nýlegum flokki geðdeyfðarlyfja sem hafa sérhæfð áhrif á virkni taugaboðefnisins serótóníns í heila. Talið er að breytingar á starfsemi taugafrumna sem nota þetta boðefni séu hluti af orsökum geðdeyfðar. Eldri geðdeyfðarlyf eru ekki eins sérhæfð og hafa áhrif á fleiri boðefni. Sertralín og skyld lyf virðast hafa svipaða virkni og eldri lyfin á einkenni geðdeyfðar, þau bæta skap, auka líkamlega virkni, bæta matarlyst og auka áhuga á daglegu lífi. Nýrri lyfin hafa þó ekki eins róandi verkun og eru laus við margar alvarlegar aukaverkanir eldri lyfjanna. Þau valda heldur ekki alvarlegum eitrunareinkennum við ofskömmtun. Sertralín er notað við geðdeyfð, þráhyggju- og áráttusýki (obsessive-compulsive disorder) og ofsahræðslu (panic disorder) með eða án víðáttufælni (agarophobia).
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Sertral (PDF 181kb)

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Sertral (PDF 137,07kb)