Ísland
250 mg - 10 og 20 stk.
500 mg - 10 og 20 stk.
Cíprófloxacín er breiðvirkt sýklalyf. Það hindrar afritun erfðaefnis í bakteríum og kemur þannig í veg fyrir að frumur skipti eða fjölgi sér. Cíprófloxacín er notað við ýmsum bakteríusýkingum, t.d. í þvagfærum, blöðruhálskirtli, maga og þörmum. Það þolist yfirleitt vel og aukaverkanir þess eru tiltölulega fátíðar. Lyfið hentar þó ekki börnum eða þunguðum konum þar sem það getur hugsanlega valdið sinaskemmdum og liðbólgu í börnum. Eins og önnur breiðvirk sýklalyf getur cíprófloxacín raskað eðlilegri bakteríuflóru líkamans og því getur fylgt aukin hætta á sýkingum af völdum sveppa eða baktería sem eru ónæmar fyrir lyfinu.
Síprox 250 mg (PDF 265,59kb)
Síprox 500 mg (PDF 264,82kb)
Síprox 250 mg (PDF 90,03kb) Síprox 500 mg (PDF 89,47kb)